Almennar reglur
Innifalið í leigu er salur, setustofa og wc aðstaða. Í salnum eru leik og/eða þjálfunartæki sem fyrirtækið á en leigjandi hefur aðgang að. Skjávarpi er í lofti, stólar og borð eru til en hafa þarf samráð við fyrirtækið vegna áætlaðrar notkunar á þessu þrennu.
Krafa er um að allir sem nýta aðstöðuna gangi vel um og fari eftir reglum.
Ekki má vera með hunda sem eru óbólusettir og/eða ekki ormahreinsaðir reglulega.
Tíkur á lóðarí verða að vera í lóðabuxum. Ef um t.d. viðburð, sýningu eða námskeið er að ræða, hafið samband til að athuga með undantekningu samkvæmt ákveðnum fyrirmælum.
Bannað er að skilja hunda og börn eftir í salnum eftirlitslaus.
Gervigrasið í salnum og undirlag þarf að umgangast á ákveðinn hátt svo hægt sé að nýta það á sem ánægjulegasta og hreinlegasta máta fyrir alla.
Hundaeigandi skal reyna eftir fremsta megni að sjá til þess að hundur sé búinn að losa þvag og saur áður en komið er inn. Bannað er að leyfa hundum að merkja, míga og skíta í aðstöðunni. Komi fyrir slys í sambandi við þvag, skít eða uppköst þarf hundaeigandi að sinna því strax og hreinsa upp eftir bestu getu. Búnaður til þrifa og leiðbeiningar eru á staðnum í merktum kassa. Poka með hundaskít á ekki að skilja eftir innanhúss.
Sé umgengni slæm, sóðaleg og/eða endurtekin má leigjandi búast við sekt og í framhaldi banni ef umgengnisreglur eru ekki virtar.
Fyrirtækið áskilur sér rétt til að neita eða hafna að leigja aðila aðstöðuna.
Fyrirtækið áskilur sér einnig rétt til að fella niður bókun eða færa hana ef þörf er á vegna viðburða í húsnæðinu á vegum eigenda Farin í hundana.
Virða skal tímaramma og fara ekki inn á tíma aðila sem koma í salinn á eftir. Tíminn er 55 mínútur til að gefa færi á að koma hundi út og ganga frá áður en næsti aðili mætir.
Setustofa
Hundar eiga ekki að vera uppi í sófa eða á stólum né þeim gefið færi á að merkja húsgögn og muni þar inni.
Salur
Bannað er að fara á útiskóm eða skítugum skófatnaði inn í salinn.
Nota skal hreinan inniskófatnað, svo sem íþróttaskó sem ekki eru notaðir utandyra, almenna inniskó eða vera í sokkum.
Hunda með blauta og/eða skítuga þófa skal þrífa og/eða þurrka áður en farið er með hundinn inn í sal.
Ekki skal vatna hundi á gervigrasinu. Ekki nota mjög blauta verðlaunabita sem klessast eða festast við gervigrasið sé stigið á þá. Taka á upp alla bita sem lenda á gólfi.
Fólk má ekki neyta drykkja eða matar í salnum.
Útgöngudyr í horni salarins (bakhliðarenda) eiga alltaf að vera læstar og ekki á að ganga um þær nema í neyðartilfellum.
Ef vantar aðstoð: hafið samband við Siggu í síma 697 7016.