Um salinn
Salurinn er um 150 fm að stærð utan setustofu, með sérhönnuðu gólfi fyrir hunda. Gólfið er með sérstaklega góðu gripi, dempar högg og álag og hentar því vel fyrir hunda á öllum aldri. Á staðnum er setustofa og wc aðstaða. Speglar á 2 veggjum og ýmis afþreyingartæki til staðar. Einnig eru stólar, borð, nettenging og skjávarpi í boði fyrir viðburði. Lítil eldhúsinnrétting fyrir kaffiaðstöðu er væntanleg.



